|
Justin og Lára best á lokahófi körfuknattleiksdeildarinnar! |
|
Miðvikudagur, 14 Apríl 2010 14:36 |
|
Lokahóf körfuknattleiksdeilar Stjörnunnar var haldið síðastliðið laugardagskvöld og var tímabilið gert upp.
Justin Shouse var valinn besti leikmaður meistaraflokks karla enda átii drengurinn frábært tímabil. Justin var m.a valinn í fimm manna úrvalsliðs deildarinnar í fyrri umferðinni, var með um 23 stig að meðaltali í leik í vetur og 6 stoðsendingar og átti mjög stóran þátt í því að liðið náði sínum besta árangri í deildinni, 4. sætið.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Fimmtudagur, 07 Janúar 2010 12:12 |
|
Nú er karfan að fara á fullt að nýju eftir jólafrí. Drengjaflokkur reið á vaðið og spilaði frestaðan leik við Snæfell/Skallagrím. Eitthvað hefur steikin setið í drengjunum því þeir töpuðu stórt á móti toppliðinu. Næsti leikur hjá Drengjaflokki er n.k. þriðjudag þegar Blikar koma í heimsókn. Nú eru 8 liða úrslit í bikarkeppni að hefjast. Þar mætir Drengjaflokkur sterku liði Fjölnis á útivelli en dagsetning liggur ekki enn fyrir. 9. flokkur leikur einnig á útivelli og mætir liði Keflvíkinga og verður leikurinn miðvikudaginn 13. jan kl 19:00. Strákarnir í 9. flokki spila einnig í bikarkeppni 10. flokks og þar fengu þeir heimaleik gegn Fjölni og verður spilað á morgun, föstudag kl 20:00. Fjölnir leikur í A riðli 10. flokks þannig að eflaust verður róðurinn þungur fyrir okkar menn. Helgina 23.-24. janúar fer síðan fram Póstmót Breiðabliks þar sem Stjörnumenn verða fjölmennir. 3ja umferð íslandsmótsins hefst síðan 30. jan og ríður 8. flokkur á vaðið. Yngri flokkarnir hafa æft af kappi yfir hátíðirnar og verður spennandi að fylgjast með þeim á nýju ári.
Seinni umferð hjá mfl karla hefst síðan á mánudaginn með útileik gegn Fjölni og síðan kemur annar útileikur í kjölfarið gegn Keflavík. Fyrsti heimaleikurinn er síðan ekki fyrr en 24. janúar og er það stórleikur gegn Snæfelli sem situr í 6. sæti deildarinnar, 4 stigum á eftir Stjörnunni. Mfl kvenna byrjar einnig á útivelli þann 17. jan og eru andstæðingar þeirra Grindavík B.
|
|
Stjarnan semur við Magnús Helgason |
|
Föstudagur, 28 Ágúst 2009 22:32 |
|
Stjarnan hefur samið við Magnús Helgason og mun hann því leika í hvítu og bláu í vetur. Magnús hefur lengstum spilað með Þór Akureyri, enda borinn og barnfæddur Akureyringur. Hann er þó ekki ókunnugur Garðabænum því hann spilaði með Stjörnunni á fyrsta ári liðsins í úrvalsdeild leiktíðina 2001-2002. Þar á eftir spilaði hann með KR í 2 tímabil áður en hann fór aftur og heimaslóðir og hefur spilað með Þór Akureyri síðan, fyrir utan síðasta tímabil þar sem hann var erlendis í námi. Magnús kemur til með að styrkja lið Stjörnunnar fyrir komandi átök enda liðtækur sem skotbakvörður sem og framherji og er fyrirtaks þriggjastiga skytta.
Við bjóðum Magnús velkominn í Stjörnuna! |
|
Körfuboltaskóli Stjörnunnar |
|
Þriðjudagur, 25 Ágúst 2009 11:17 |
|
Íþróttaskóli Stjörnunnar býður öllum börnum í Garðabæ fæddum 1998 – 2003 að koma í Körfuboltaskóla, helgina 29-30 ágúst í Ásgarði, frá kl. 10:00-13:00 báða dagana. Meistarflokkur karla og kvenna í köfubolta sjá um kennsluna.
Körfuboltaskólinn er fyrir bæði stelpur og stráka, byrjendur og lengra komna. ATHUGIÐ, EKKERT ÞÁTTÖKUGJALD!
Körfuboltaskólinn verður með glæsilegu sniði þar sem verður sérstök áhersla lögð á þjálfun í smærri hópum, þannig að hver einstaklingur fái þjálfum við sitt hæfi. Unnið verður í undirstöðuatriðum körfuboltans ásamt því að farið verður í létta leiki þar sem körfuboltinn er í aðalhlutverki.
Tekið er við skráningum á netfanginu
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Nánari upplýsingar gefur Hilmar, gsm 894 7203
Mælt er með því að krakkarnir komi með nesti með sér.
Hlökkum til að sjá sem flesta krakka úr Garðabæ og byrjendur eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Íþróttaskóli Stjörnunnar og Kkd Stjörnunnar
|
|
Fannar með sigur í sínum fyrsta A landsleik |
|
Þriðjudagur, 02 Júní 2009 14:20 |
|
Fannar Freyr Helgason, fyrirliði Stjörnunnar lék sinn fyrsta A landsleik í dag þegar Ísland sigraði Möltu örugglega 93-53. Okkar maður spilaði rúmar 8 mínútur en náði ekki að skora. Næsti leikur íslenska liðsins er á morgun gegn Kýpur og verður hann í beinni útsendingu á RÚV og hefst leikurinn kl 17:30 að íslenskum tíma. Það má búast við spennuleik en þessi lið léku á síðustu Smáþjóðaleikum fyrir tveimur árum og þurfti eftirlitsdómarinn að flauta leikinn af þegar um tvær mínútur voru til leiksloka vegna hegðunar Kýpurmanna. Meðal annars tóku þeir annann dómarann á loft upp og fleygðu honum eftir gólfinu!
Stjörnusíðan óskar Fannari innilega til hamingju með áfangann.
Mynd: Fannar í baráttunni í vetur |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |