| Landsliðsmenn framtíðarinnar |
|
Þessir strákar eru fyrstu landsliðsmenn félagsins í yngri landsliðunum síðan Kjartan Atli, Guðjón, Birkir og fleiri núverandi leikmenn meistaraflokks léku fyrir Íslands hönd fyrir hrikalega mörgum árum Mynd: Cannon lék sína fyrstu landsleiki um helgina
Nú um helgina kom saman í fyrsta skipti æfingahópur fyrir U15 lið næsta árs, drengir fæddir 1996. Þar átti Stjarnan 7 fulltrúa en það eru þeir, Arnar Steinn Hansson, Daði Lár Jónsson, Guðmundur Smári Þorvaldsson, Hákon Örn Harðarson, Helgi Rúnar Björnsson, Muggur Ólafsson og Óskar Þór Þorsteinsson sem er fæddur 1997. Þetta sýnir okkur að það uppbyggingarstarf sem hafið var fyrir nokkrum árum er svo sannarlega að skila sér og vonandi halda menn áfram á sömu braut. Stjörnusíðan mun halda áfram að fylgjast með okkar efnilega körfuboltafólki og það styttist í það með hverju árinu að uppaldir Stjörnumenn komi inní meistaraflokk. |