|
Daníel Guðmundsson til liðs við Stjörnuna |
|
Fimmtudagur, 20 Maí 2010 23:28 |
|
Stjarnan hefur samið við Daníel G. Guðmundsson um að leika með liðinu á næstu leiktíð og þjálfa jafnframt yngri flokk hjá félaginu. Daníel kemur úr Breiðabliki þar sem hann var kosinn besti leikmaðurinn á síðasta tímabili, en hann skoraði 11 stig og gaf 2,4 stoðsendingar að meðaltali í Iceland Express deildinni. Daníel er upprunalega úr Njarðvík og lék þar í yngri flokkum og einnig með meistara flokki, en lék einnig með FSU áður en hann gekk til liðs við Kópavogsliðsins. Hann er 23 ára gamall og leikur stöðu bakvarðar, getur leikið bæði sem leikstjórnandi og skotbakvörður og er auk þess hörku varnarmaður.
Við bjóðum Daníel velkominn til liðs við Stjörnuna, en hann mun án efa styrkja liðið enn frekar á næsta tímabili.
Mynd: Daníel ásamt Gunnari formanni innsigla samninginn. |
|
|
Jovan endurnýjar samning við Stjörnuna |
|
Mánudagur, 17 Maí 2010 23:07 |
|
Stjarnan endurnýjaði á dögunum samning við Jovan Zdravevski og mun hann því leika með liðinu á næstu leiktíð, en fyrri samningur Jovans rann út við lok sl. tímabils. Jovan hefur nú leikið með Stjörnunni frá byrjun árs 2008 og hefur verið gríðarlega mikilvægur leikmaður og átt stóran þátt í þeim árangri sem liðið hefur náð á síðustu tveim tímabilum. Hann skoraði 20.4 stig og tók 6 fráköst að meðaltali á síðustu leiktíð og var með 40% þriggja stiga nýtingu. 
Jovan hefur verið einn af sterkustu mönnum úrvalsdeildarinnar frá því að hann kom til Íslands árið 2004, þar sem hann lék fyrst með Skallagrími, svo stuttlega með KR en kom eins og áður segir í Garðabæinn í janúar 2008. Hann er frá Makedóníu en með íslenskan ríkisborgararétt. Það eru miklar gleðifregnir að Stjarnan hafi samið við Jovan um að leika með liðinu eitt tímabil í viðót.
Mynd: Jovan ásamt Gunnari Kr. Sigurðssyni formanni Körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar við undirritun samingsins |
|
Stjörnumenn Íslandsmeistarar B-liða! |
|
Laugardagur, 08 Maí 2010 15:33 |
|
Stjarnan b og Breiðablik b mættust í kvöld í úrslitaleik b-liða og var spilað í íþróttahúsinu á Álftanesi. Lokatölur voru 87-80 Stjörnunni í vil eftir spennandi lokamínútur.
Stjarnan byrjaði leikinn betur í kvöld og gaf Ari strax tóninn með sterku gegnumbroti sem kom honum á vítalínuna og sallaði hann báðum örugglega ofaní. Fljótlega var staðan 10-2 okkur í vil en Blikar fóru þá að herða róðurinn og söxuðu á forskotið, staðan eftir fyrsta leikhluta 20-17 Stjörnunni í vil.
Jafnræði var með liðinum framá miðjan 2.leikhluta en í stöðunni 36-33 fór Stjörnuvélin í gang og lokuðu leikhlutanum vel og leiddu í hálfleik 43-36.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stjarnan semur við Marvin Valdimarsson |
|
Miðvikudagur, 05 Maí 2010 21:22 |
|
Stjarnan hefur samið við Marvin Valdimarsson til að leika með Stjörnunni næsta vetur ásamt því að þjálfa yngri flokka hjá félaginu. Marvin er 28 ára gamall og hefur leikið áður með Hamri og Fjölni í úrvalsdeildinni og einnig í fyrstu deild karla síðustu tímabil. Hann var stigahæsti íslenski leikmaðurinn síðasta tímabil í Iceland Express deildini með 25 stig að meðaltali í leik og það er ljóst að hann muni styrkja lið Stjörnunnar mjög á næstu leiktíð.
Stjörnumenn bjóða Marvin velkominn í hópinn og erum við farnir að hlakka til næsta tímabils!
Mynd: Marvin og Gunnar formaður deildarinnar við undirritun samningsins |
|
Grindavík og Keflavík Stjörnustríðsmeistarar |
|
Miðvikudagur, 05 Maí 2010 21:12 |
|
Stjörnustríð, boðsmót Stjörnunnar fór fram þan 30. apríl og 1. maí síðastliðinn í Ásgarði. Þetta er í fyrsta sinn sem Stjarnan heldur þetta mót en stefnan er að halda það árlega í framtíðinni fyrir elstu árganga minnibolta, 7. og 8. flokk, bæði fyrir stelpur og stráka. Í þetta sinn var þó aðeins keppt í 7. og 8. flokki drengja þar sem ekki náðist næg þáttaka í öðrum flokkum.
Mótið var skemmtilegt og spennandi, yfirleitt mjög jafnir leikir og mikið fjör oft á tíðum. Í 7. flokki kepptu Stjarnan, Keflavík, Njarðvík og Ármann en í 8. flokki kepptu Stjarnan, KR, Grindavík og Fjölnir.
Eftir riðlakeppnina voru Stjarnan og Keflavík í fyrstu 2 sætum í 7. flokki og Stjarnan og Grindavík í 8. flokki og kepptu þessi lið því til úrslita í sínum flokkum. Fóru leikar þannig að Keflavík sigraði Stjörnuna nokkuð örugglega í 7. flokki og Grindavík sigraði svo Stjörnuna í 8. flokki, einnig nokkuð örugglega. Þessi lið af Suðurnesjunum hömpuðu því fyrstu titlunum sem Stjörnustríðsmeistarar árið 2010 í sínum flokkum og óskum við þeim til hamingju með sigrana.
Eitthvað af myndum voru teknar í úrslitaleikjunum og verða þær birtar von bráðar á heimasíðunni. |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |