|
Mánudagur, 25 Janúar 2010 13:42 |
|
Meistaraflokkur karla í körfubolta virðist taka tap og sigurleikina í hrinum. Í fyrri umferðinni töpuðust 2 leikir röð eftir 5 sigurleiki og síðan fylgdu 5 sigurleikir. Í gærkvöldi töpuðu strákarnir öðrum leiknum í röð þannig að eigum við ekki að segja að nú komi allavega 5 sigrar í röð! En í gærkvöldi mættust liðin í 4. og 5 sæti deildarinnar, Stjarnan og Snæfell, og á endanum urðu okkar menn að játa sig sigraða eftir spennandi leik 87-93. Heimamenn mættu til leiks í nýjum búningum og byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu fyrstu 7 stigin. Eftir fyrsta leikhluta leiddu heimamenn 23-21 og héldu þeir frumkvæðinu allt þar til gestirnir komust í fyrsta skipti yfir þegar um 1 og hálf mínúta var til hálfleiks. En Stjarnan náði fljótlega frumkvæðinu í 3ja leikhluta og leiddu með 7 stigum þegar síðasti leikhluti hófst. Lokaleikhlutinn var æsispennandi og þegar rúm ein mínúta var til leiksloka voru gestirnir með 2ja stiga forskot og allt opið. Stjarnan hefur í vetur hvað eftir annað stigið upp í lokin og klárað leikina en í gærkvöldi vantaði eitthvað uppá og Snæfell náði að landa 6 stiga sigri. Í lokin var það varnarleikurinn sem brást algerlega en gestirnir skoruðu 30 stig í síðasta leikhlutanum. Menn virtust orðin þreyttir og eins áttu menn í vandræðum með svæðisvörn gestanna.
Mynd: mbl.is - Jovan í baráttu við Sigurð Þorvaldsson
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Framtíðarstjörnur Stjörnunnar |
|
Mánudagur, 25 Janúar 2010 11:06 |
|
Um helgina fór fram árlegt Póstmót Breiðabliks fyrir yngstu iðkendurna í körfubolta. Þetta mun hafa verið fjölmennasta mótið til þessa sem sem undirstrikar gróskuna í körfunni á landinu. Stjarnan sendi fjölmörg lið til keppni að þessu sinni og greinilegt að framtíðin er björt hjá félaginu. Mörg frá bær tilþrif sáust hjá krökkunum og leikgleðin skein úr hverju andliti. Stjörnusíðunni bárust nokkrar myndir af 7 ára strákunum sem Fannar Helgason þjálfar. Þarna leinast örugglega stjörnur framtíðarinnar.
Ef einhverjir luma á myndum af öðrum flokkum á mótinu, endilega senda á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Mynd: Baráttuandinn er greinilega í lagi í þessum hóp.
Þið sjáið fleiri myndir frá mótinu með því að klikka á "lesa meira"
|
|
Lesa meira...
|
|
Undanúrslit í bikarkeppni yngri flokka |
|
Mánudagur, 25 Janúar 2010 10:08 |
Á föstudaginn var dregið í undanúrslitin í bikarkeppni yngri flokka hjá KKÍ. Stjarnan átti tvö lið í pottinum, Drengjaflokk og 9. flokk. Drengaflokkur hefur að vísu ekki leikið sinn leik í 8 liða úrslitunum, gegn Fjölni, en hann verður spilaður í kvöld. Nái Fannar og strákarnir hans að sigra þá bíður þeirra erfið viðureign við Snæfell/Skallagrím á útivelli. Kjartan Atli og drengirnir hans í 9.flokki fengu hins vegar heimaleik gegn KR. Þar má búast við miklum spennuleik, liðin hafa leikið tvo leiki innbyrðis í vetur og sigruðu Stjörnumenn fyrri leikinn þar sem úrslitin réðust á síðustu mínútunni og seinni leikinn sigruðu KR-ingar eftir framlenginu. Leiktími mun liggja fyrir mjög fljótlega en undanúrslitum skal vera lokið fyrir 16. febrúar. |
|
Sólsteinar styrkja Stjörnuna |
|
Laugardagur, 23 Janúar 2010 17:49 |
Brjánn Guðjónsson framkvæmdastjóri Sólsteina í Kópavogi og Gunnar Kristinn Sigurðsson formaður KKD Stjörnunnar undirrituðu á dögunum nýjan samning þess efnis að Sólsteinar verði út þetta tímabil aðalstyrkaraðili Stjörnunnar.
Fram að þessu höfðu Stjörnumenn leikið án aðalstyrktaraðila og hafði Gunnar haft það á orði að Stjörnumenn hefðu unnið bikarinn á röngu ári. Þessi staða hefði væntalega ekki verið uppi hefði félagið unnið bikarinn t.d. árið 2007. Stjörnumenn geta nú tekið gleði sína á nýjan leik og hætt að auglýsa Landsbankann frítt en fram að þessu hafði félagið leikið með merki bankans framan á búningum sínum, stofnuninni að kostnaðarlausu.
,,Það hefur vegar gengið vel að ná í styrktaraðila uppá síðkastið enda hefur liðinu gengið mjög vel og vakið mikla athygli. Nú hafa bæst við nokkur fyrirtæki sem verða sterkir bakhjarlar deildarinnar í vetur og vonandi til framtíðar,“ sagði Gunnar í samtali við Karfan.is.
Sólsteinar er steinsmiðja í Kópavogi sem framleiðir granítplötur fyrir heimili og fyrirtæki auk flísa og þá framleiða þeir einnig legsteina.
"Ég er stoltur af því að geta stutt við bakið á Stjörnunni og því góða fólki sem að þar vinnur frábært og óeigingjarnt starf. Það er mín von að stuðningur Sólsteina verði til þess að efla þetta góða lið" segir Brjánn Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sólsteina.
|
|
Stjarnan - Snæfell á sunnudaginn kl 19:15 |
|
Föstudagur, 22 Janúar 2010 14:15 |
|
Á sunnudagskvöldið er fyrsti heimaleikurinn á árinu þegar Snæfell mætir í Garðabæinn og hefst leikurinn að vanda kl 19:15. Það eru allar forsendur fyrir miklum spennuleik, Stjarnan situr í 4. sæti deildarinnar með 20 stig og Snæfell er í því fimmta með 18 stig en toppliðin er aðeins með 2 stigum meira en okkar menn. Það er því mikið í húfi, sigur þýðir að við höldum okkur við toppinn, tap gæti þýtt að KR aog Njarvík næðu 4ra stiga forskoti. Fyrri leikur liðanna var gífurlega spennandi sem endaði með eins stigs sigri Stjörnunnar þar sem Justin kláraði leikinn á línunni 3 sek fyrir leikslok. Síðan þá hafa Snæfellingar bætt við sig leikstjórnanda sem er víst mikil 3ja stiga skytta sem þarf að hafa góðar gætur á. Auk hans hafa Snæfellingar toppmenn í öllum stöðum, m.a. frákastamaskínuna Hlyn Bæringson, þriggja stiga skytturnar Sigurð þorvaldsson og Jón Ólaf og fleiri væri hægt að tína til. En okkar menn eru engir aukvisar eins og staðan í deildinni staðfestir. Sem sagt, það verður toppleikur á sunnudaginn og nú þurfa okkar menn á öflugum stuðningi að halda. Munið að mæta tímanlega.
Mynd: Justin Shouse þekkir vel til andstæðinganna á sunnudaginn
Áfram Stjarnan |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |