|
Föstudagur, 05 Febrúar 2010 09:27 |
|
Tveir nýjir leikmenn hafa bæst í hópinn hjá meistaraflokki karla. Serbneski leikmaðurinn Djordje Pantelic hefur skrifað undir samning við Stjörnuna og mun leika með liðinu það sem eftir lifir tímabilsins. Djordje er 206 cm á hæð og spilar stöðu framherja/miðhjerja. Hann er mjög sterkur og getur látið að sér kveða inni í teig sem og skotið fyrir utan, og mun því nýtast okkur vel í baráttunni sem framundan er. Djordje er mættur til landsins og mun leika sinn fyrsta leik í kvöld gegn FSU.
Þá hefur bakvörðurinn knái Ólafur J. Sigurðsson ákveðið að snúa aftur heim eftir að hafa dvalið í Danmörku sl. ár. Hann hefur spilað í dönsku úrvalsdeildinni með liðinu Abyhoj og staðið sig með prýði, en langaði að koma heim og aðstoða okkar menn á lokasprettinum. Hann mun án efa hjálpa okkur mikið í baráttunni sem eftir er, enda mikil baráttuhundur og eðaldrengur þar á ferð. Ólafur kemur heim á mánudag og spilar sinn fyrsta leik gegn sínum gömlu félögum í ÍR þann 11. febrúar.
Með þessa menn ásamt þeim sterka hóp sem fyrir er í herbúðum Stjörnunnar er liðið til alls líklegt á lokasprettinum í deild og úrslitakeppninni sem framundan er.
Mynd: Óli er mættur aftur |
|
|
"Good, better, best,......." |
|
Sunnudagur, 31 Janúar 2010 00:05 |
|
Nú um helgina hefjast fjölliðamót yngri flokkanna að nýju og hjá Stjörnunni ríður 8.fl karla á vaðið og næstu 3 helgar mun mikið vera um að vera. Í tilefni þess að seinni hluti íslandsmótsins er að hefjast sló Stjörnusíðan á þráðinn til Snorra yfirþjálfara og heyrði í honum hljóðið, hvernig honum litist á framhaldið hjá yngri flokkunum.
Mynd: Snorri Örn og Gunnar formaður
· Nú ert þú á fyrsta ári hjá Stjörnunni Snorri, hvernig list þér á? Mér líst mjög vel á þetta, enda mikill metnaður lagður í starfið og vel haldið utan um alla hluti. Það eru allar forsendur fyrir því að gera góða hluti í Garðabænum með þessa umgjörð.
|
|
Lesa meira...
|
|
MB 11 ára á Póstmóti Breiðabliks |
|
Föstudagur, 29 Janúar 2010 14:06 |
|
Það voru 19 sprækir piltar í þremur Stjörnuliðum sem mættu til leiks á Póstmót Breiðabliks sunnudaginn 24. janúar. Liðunum gekk misjafnlega, en lagt var upp með að hafa gaman af mótinu og að allir legðu sig fram. Talsverðar framfarir sáust hjá nokkrum og mörg glæsileg tilþrif litu dagsins ljós. Mótið var því gott innlegg í næstu verkefni þessa hóps, en A-liðs bíður þriðja umferð Íslandsmóts 6.-7. febrúar og B-lið leikur 20.-21. febrúar.
Mynd: SÖA
Hægt er að skoða fleiri myndir með því að klikka á "lesa meira"
|
|
Lesa meira...
|
|
MB 7 ára fjölmennir á Póstmótinu |
|
Miðvikudagur, 27 Janúar 2010 16:38 |
|
Um síðustu helgi tók minnibolti 7ára þátt í Póstmótinu. Stjarnan var eina félagið sem sendi frá sér tvö lið í þessum aldursflokk og stóðu bæði liðin sig frábærlega. Liðin spiluðu á móti Breiðablik, Kr, Reykdælum og Fjölni. Óhætt er að segja þar hafi verið á ferðinni framtíðarmenn Stjörnunnar. Allir spiluðu mikið og sýndu að þeir hafa tekið miklum framförum bæði í vörn og sókn. Liðin voru þannig skipuð Stjarnan 1: Bjarki Kristgeir, Ingvi Freyr, Ólafur Áki, Helgi Hrafn, Wilhelm, Kolbeinn og Arnar Daði. Stjarnan 2: Jón Ásgeir, Árni Þór, Orri, Dagur Björn, Ísak Andri, Gauti Leon, Gunnlaugur, Matthias
Mynd: Fannar ásamt nokkrum efnilegum Stjörnumönnum. Fleiri myndir af 7 ára strákunum er að finna HÉR
Kveðja Fannar þjálfari
|
|
MB 8 og 9 ára á Póstmótinu |
|
Miðvikudagur, 27 Janúar 2010 09:07 |
 Minnibolti 8 og 9 ára drengja sendi 3 lið til keppni á Póstmót Breiðabliks sem fram fór dagana 23. og 24. janúar síðastliðinn. Níu ára drengirnir voru með tvö lið en 8 ára hópurinn telfdi fram einu liði.
Öll liðin þrjú komust vel frá sínu á mótinu og voru allir sem einn duglegir að leika vörn, sýndu fínar varnarstellingar, voru uppi á tánum og gerðu sig stóra með útbreiddan faðminn. Flott mót hjá strákunum sem röðuðu niður körfum og spiluðu oft mjög vel saman. Því vildi þó bregða við að menn yrðu aðeins of spenntir þegar þeir komust að körfunni og fóru fín tækifæri forgörðum en strákarnir bæta úr því á næstu æfingum.
Myndir í myndasafni á Karfan.is. Til vinstri er Heinrich að leita að besta sendingarmöguleikanum og til hægri er Ólafur Bjarni í þann mund að skora 2 stig. Stjörnusíðan rakst síðan á skemmtilegt myndband á YouTube af einum leikmanni Stjörnunnar. Hægt er að skoða það með því að klikka HÉR. Einnig eru fleiri myndir af mótinu inná www.stjarnan.is og hægt er að skoða þær HÉR. Þetta eru aðeins 3 af fjölmörgum stórefnilegum strákum í þessum hóp sem eru að taka miklum framförum undir stjórn þjálfara síns Jóns Björns Ólafssonar.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |