Stjarnan - Körfubolti


Næstu leikir - Mfl Karla

Iceland Express deildin hefst að nýju í haust!

Þú ert hér: Forsíða
Stjarnan - ÍR á morgun fimmtudag
Miðvikudagur, 10 Febrúar 2010 21:29

Á morgun, fimmtudag kl 19.15 leikur mfl Stjörnunnar gegn ÍR í Ásgarði ígaui Iceland Express deildinni.  Nú er lokaspretturinn í deildinni framundan og geta 6 lið enn unnið deildarmeistaratitilinn þannig að hvert stig er gífurlega mikilvægt.  Að venju er að sjálfsögðu skyldumæting hjá öllum iðkendum og hvetjum við alla foreldra að drífa sig með og horfa á skemmtilegan leik.

 

Lesa meira...
 
Níundi flokkur næstbestir um helgina
Miðvikudagur, 10 Febrúar 2010 10:25

 

9. flokkur Stjörnunnar lenti í öðru sæti á þriðja fjölliðamóti tímabilsins. Mótið fór fram í Ásgarði og heppnaðist mjög vel í alla staði.Stjörnudrengir unnu þrjá leiki en töpuðu þeim síðasta, gegn KR-ingum. 
Lesa meira...
 
MB 11ára stoppaði stutt í B riðli
Mánudagur, 08 Febrúar 2010 15:02

postmot_mb11-5Þriðja umferð MB11 ára drengja var leikin um nýliðna helgi, en Stjörnudrengir léku í B-riðli að þessu sinni.

Fyrsti leikur helgarinnar var gegn Grindvíkingum.  Stjörnudrengir mættu heldur værukærir til leiks og léku slaka vörn, Grindvíkingar voru líflegir og léku vel.  Staðan eftir fyrsta leikhluta var 9-6 og eftir annan leikhluta 12-10.  Stjörnumenn gleymdu að mæta til leiks í þriðja leikhluta og gáfu færi á sér með slökum varnarleik og enn slakari sóknarleik og Grindavíkurpiltar gengu á lagið með 16 stigum gegn aðeins 2 stigum Stjörnunnar.  Fjórði leikhluti var lítið skárri þar sem Grindvíkingar léku áfram vel og Stjörnupiltar voru langt frá sínu besta, Grindvíkingar leiddu með 22 stigum að loknum fjórða leikhluta.  Þolanlegur fimmti leikhluti lagaði stöðuna örlítið fyrir Stjörnupilta, en Grindvíkingar unnu öruggan og sanngjarnan sigur 45-29.
Dagur var stigahæstur með 9 stig, Aron J. skoraði 6, Hlynur 5, Guðmundur 4, Aron Fannar og Ísak Örn 2 hvor og Ólafur Bjarni 1.

Gríðarlega einbeittir og ákveðnir Stjörnustrákar mættu til leiks gegn Sindra í öðrum leik.  Stjörnudrengir léku ágæta vörn í upphafi og komust í 8-4 en strákarnir frá Höfn sýndu mikla baráttu og náðu að minnka muninn í 8-7, en Aron J. smellti tveimur körfum fyrir lok leikhlutans og tryggði 5 stiga forystu Stjörnunnar að loknum fyrsta leikhlutanum.  Stjörnustrákar voru ákveðnir í að gera enn betur og sýndu það á vellinum strax í upphafi annars leikhluta.  Varnarleikurinn var mjög góður og allar aðgerðir Sindradrengja voru erfiðar, sóknarleikurinn gekk vel upp hinu megin á vellinum og staðan 26-11 eftir annan leikhluta.  Enn batnaði staðan eftir þriðja leikhluta þar sem Stjarnan skoraði 16 stig í röð og sigurinn orðinn svo gott sem öruggur.  Stjörnudrengir léku áfram góða vörn út leikinn og unnu öruggan 68-14 sigur.
Ólafur Bjarni var stigahæstur með 16 stig, Ragnar Björgvin setti 13, Aron J. og Guðmundur 10 hvor, Hlynur 6, Aron Fannar og Ísak Örn 4 hvor, Egill og Dagur 2 hvor og Sigurður 1.

Lesa meira...
 
Sigur á FSU
Föstudagur, 05 Febrúar 2010 22:31

Strákarnir skiluðu tveim stigum í hús í kvöld þegar þeir sigruðu FSU á Selfossi 83-95.  Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og ekki voru margir áhorfendur sem lögðu leið sína í Iðuna í kvöld, en afar fámennt var á pöllunum.  FSU voru mun sprækari framana af og það var eins og Stjörnumenn hefðu ákveðið að leikurinn myndi vinnast af sjálfum sér. Á meðan okkar menn sváfu í vörninni og voru engan vegin að spila sóknarleikinn af viti spiluðu FSU eins og sá sem valdið hefur og leiddu eftir fyrsta leikhluta 23-19 og voru á tíma með 10 stiga forystu.  jovanvsfsuEf ekki hefði verið fyrir stórleik Jovans Zdravevski hefðu okkar menn verið a.m.k. 10-15 stigum undir í hálfleik, en kappinn var í miklum ham sallaði niður þristunum ásamt því að keyra á körfuna og leggja boltan ofaní.  Stjarnan leiddi 43-46 í hálfeik en var FSU að spila fínan leik.  Teitur hefur svo greinilega lesið yfir okkar mönnum í hálfleik því þeir komu miklu mun stemmdari inn í seinni hálfleikinn og með fínni spilamennsku og almennilegum varnarleik (loksins) tóku þeir 20-6 áhlaup á heimamenn og staðan skyndilega 49-66 eftir 5 mínútur.  Justin var að spila vel á þessum kafla auk þess sem Djordje Pantelic kom nokkuð sterkur inn og setti 6 stig og tók nokkur fráköst, en hann hafði ekki sýnt mikið í fyrri hálfleik. Staðan var 60-75 í lok þriðja.

Okkar menn héldu muninum áfram í fjórða leikhluta og Teitur róteraði fleirum inn í leikinn.   Jovan hélt áfram að spila vel, auk þess sem Birkir og Biggi og Óli komu sterkir inn.  Í lokin fengu svo Erling og Haffi að spreyta sig, en þrátt fyrir að okkar menn héldu forystunni yfir 10 stigum þá gáfust FSU menn aldrei upp þrátt fyrir að missa bandaríska leikmann sinn út af snemma í fjórða leikhluta. Lokamínúturnar voru svo á vítalínunni þar sem Justin kláraði leikinn, en forystan fór niður í 8 stig á lokamínútunni.  Það var svo við hæfi að Haffi setti tvö síðustu stigin í leiknum eftir stoðsendingu frá Ella.

Jovan átti stórleik í kvöld með 33 stig og frábæra nýtingu. Justin var sterkur að vanda, með 25 stig.  Óli setti 9 stig og átti fínan leik en Djordje þarf greinilega að aðlagast leik liðsins betur, en hann virkaði frekar hægur og ekki í takt við leikinn. Vonandi kemur það með tímanum.

 

 
Góður árangur hjá 8. flokk
Föstudagur, 05 Febrúar 2010 09:49

7.flUm síðustu helgi fóru fjölliðamótin hjá yngri flokkunum af stað aftur eftir nokkurt hlé.  Justin Shouse þjálfari 8. Flokks hélt með sína drengi til Grindavíkur.  Markmiðið var að tryggja sér öruggt sæti í úrslitakeppninni.  Stjörnusíðunni var að berast umsögn Justins um leiki helgarinnar. Klikkið á "lesið meira" og sjáið hvernig gekk.

 

Mynd: Justin og drengirnir hans 

Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Forsíða