Stjarnan - Körfubolti


Næstu leikir - Mfl Karla

Iceland Express deildin hefst að nýju í haust!

Þú ert hér: Forsíða
Stjarnan sigraði KR í úrslitum
Mánudagur, 08 September 2008 00:12

rsz_070908_176Stjarnan sigraði KR 80-77 í úrslitum Valsmótsins sem lauk í dag í Vodafonehöllinni. Þetta er annað árið í röð sem Stjarnan vinnur Valsmótið. Það byrjaði reyndar ekki vel fyrir Stjörnumenn í leiknum í dag því KR-ingar komust í 25-3 en með ótrulega góðri baráttu náðu leikmenn Stjörnunnar að jafna metin og komast yfir.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 25-12 fyrir KR en í öðrum leikhluta tóku Stjörnumenn heldur betur við sér og náðu að jafna í 25-25. KR-ingar höfðu þó nauma forystu í hálfleik 38-36. Í þriðja leikhluta var það Stjarnan sem var í aðalhlutverki en liðið var að spila vel saman og það var virkilega gaman að horfa á þá en staðan eftir þriðja leikhluta var 62-56 fyrir Stjörnunni. Í fjórða leikhluta var Stjarnan áfram með yfirhöndina og hafði loks sigur, 80-77.

Lesa meira...
 
Tveir sigrar í dag
Laugardagur, 06 September 2008 19:58
fannarStjarnan vann báða leikina sína á hraðmóti Vals í Vodafonehöllinni í dag. Stjarnan vann Val 65-37 í fyrri leik liðsins en svo voru það ÍR-ingar sem urðu fórnarlömb Stjörnunnar en þann leik vann Stjarnan 51-36. Sem sagt öruggt og þægilegt. Stjarnan er því með 4 stig eftir tvær umferðir í A-riðli, ÍR og Haukar eru með 2 stig og Valur án stiga. Stjarnan mætir liði Hauka klukkan 12:00 á morgun í Vodefonehöllinni en leikurinn er úrslitaleikur um efsta sætið í riðlinum og þar með sæti í úrslitaleik mótsins sem fer svo fram klukkan 16:00.
Lesa meira...
 
Leikjaniðurröðun í Valsmótinu
Föstudagur, 05 September 2008 09:45

valur
Eins og fram hefur komið hér á síðunni fer hraðmót Vals og Reebok fram um helgina í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Leikið verður í tveimur riðlum og leiktíminn verður 4x8 mínútur, klukkan verður aðeins stöðvuð síðustu tvær mínútur í hvorum hálfleik. Fyrsti leikur Stjörnunnar er klukkan 13:00 á morgun en mótherjar Stjörnunnar í leiknum eru Valsmenn.

Lesa meira...
 
"Koma svo"
Fimmtudagur, 04 September 2008 19:06

1526_1518_stjarnanvalsmotHraðmót Vals í körfubolta fer fram um næstu helgi í íþróttahúsinu að Hlíðarenda. Í ár eru 8 lið skráð til leiks og munu þau keppa í tveimur 4 liða riðlum. Efstu liðin leika svo til úrslita á sunnudeginum.

Liðin sem leika á mótinu eru Valur, KR, ÍR, Stjarnan, Þór Akureyri, KFÍ, Ármann og Haukar.  Þetta eru því 4 lið úr úrvalsdeild og 4 lið úr 1. deild. Stjarnan leikur í A-riðli ásamt Valsmönnum, ÍR og KFÍ. Stjarnan vann hraðmót Vals á síðasta ári og hefur því titil að verja.

Í tilefni þess að tímabilið er að hefjast tókum við þjálfara Stjörnunnar, Braga Hinrik Magnússon, tali og spurðum hann út í komandi átök.

Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 61 62 63 64 65 66 67 68 69 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Forsíða