Stjarnan - Körfubolti


Næstu leikir - Mfl Karla

Iceland Express deildin hefst að nýju í haust!

Þú ert hér: Forsíða
9. flokkur heldur áfram að standa sig vel í 10. flokki
Miðvikudagur, 24 Febrúar 2010 12:41

 
Mynd: Töffarar...Nei, þetta er ekki nýjasta strákahljómsveitin í bransanum, heldur 9. flokkur Stjörnunnar.

Strákarnir í 9. flokki fóru norður yfir heiðar (engin pönslína) fyrir viku síðan og kepptu í 3. umferð Íslandsmótsins fyrir 10. bekkinga. Þrátt fyrir að vera yfirleitt með mun lægri meðalhæð og vanta nokkur kílógrömm í líkamlegu atgervi unnu strákarnir okkar frækna sigra á nokkrum sér eldri drengjum.

Strákarnir spiluðu gegn Þórsurum, Sauðkrækingum og Grindvíkingum sem skarta einum tveggja metra turni og öðrum sem er ekki mikið lægri.   Strákarnir léku á tíðum virkilega fallegan körfubolta og sýndu skemmtilega takta, bæði í vörn og sókn.

Lesa meira...
 
Miklar framfarir hjá stelpunum
Mánudagur, 22 Febrúar 2010 13:08

stjarnan1og2_stelpurMb 10-11 kvk stóðu sig glæsilega vel á þriðja íslandsmótinu sem haldið var í Hveragerði. Liði skipaði þessum leikmönnum: Gabríela, Jóna, Jasmín, Hafdís, Gyða, Rut (Sunna, Anna Sif og Ingibjörg gátu því miður ekki komið). Miklar framfarir hafa verið í liðinu og náðu þær að spila boltanum vel saman. Fyrir þetta mót lögðum við mikla áherslu á sendingum og stutt skotum og var það greinilega að skila sér vel. Stelpurnar börðust allan tíman og var mikil barátta inná vellinum. Þær unnu tvo fyrstu leikina glæsilega. Seinasti leikurinn var jafn fyrstu  leikhlutina. Mikil harka var hjá báðum liðinum og fór því miður aðeins að sjást í þreytu hjá okkur enda vorum við með stuttan bekk. En stelpurnar heldu áfram baráttunni til leikslok og þrátt fyrir ósigur stóðu þær sig mjög vel.  Allar stelpurnar náðu að skora körfu á mótinu!

Mynd:  Hluti stelpnanna á Actavismótinu í fyrra

Lesa meira...
 
Sætur sigur gegn Stólunum
Miðvikudagur, 17 Febrúar 2010 08:49

djorde-isomStjarnan gerði góða ferð á Krókinn í gærkvöldi.  Eftir mikinn spennuleik tryggði fyrirliðinn Fannar Helgason sigurinn 6 sek fyrir leikslok.  Leikstjórnendur liðanna, þeir Justin og Cedric Isom, virðast hafa lagt höfuðáhersu á varnarleikinn því 4 mín fyrir leikslok þá hafði Isom skorað 6 stig og Justin 8.  Isom endaði leikinn að vísu í 15 stigum en þetta eru tölur sem þessir kallar eru ekki vanir.  Djorde virðist sífellt vera að komst betur og betur inní leik liðsins og var stigahæstur okkar manna með 22 stig og 11 fráköst.  Fannar kom næstur með 16 stig og Jovan var með 15. 

Mynd: tindastóll.is  Djorde gerir sig breiðan gegn Isom

Með sigrinum komst Stjarnan að nýju í 3ja sæti deildarinnar.  Enn munar bara 4 stigum á fyrsta og sjötta sæti og nú fer í hönd gífurlega spennandi lokasprettur.  Toppliðin eiga öll eftir innbyrðisleiki þannig að eflaust eiga öll lið eftir að tapa stigum.  Stjarnan á erfitt prógram framundan, næstu 3 leikir eru allir gegn liðum í efstu sætunum, Grindavík, Njarðvík og KR. 

Umflöllun um leikinn af tindastoll.is er hægt að lesa HÉR

 
Stjarnan vinnur ÍR í spennuleik!
Föstudagur, 12 Febrúar 2010 12:10

jovanvsr2010Stjarnan vann góðan sigur á ÍR í gær 80-71 í Ásgarði. Eftir þennan sigur situr Stjarnan í 3.sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum á eftir toppliði KR.

Stjörnumenn byrjuðu leikinn með miklum látum og virtust ætla að keyra yfir ÍR-inga strax á upphafsmínútum leiksins, þeir skoruðu m.a úr fyrstu 6 sóknum sínum og voru með góð tök á leiknum enda leiddu strákarnir 28-16 eftir leikhlutann. Djorde Pantelic nýjasti meðlimur Stjörnunnar fór mikinn í leikhlutanum og skoraði 10 stig, tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.

Í öðrum leikhluta spíttu hinsvegar ÍR-ingar í lófana og var það kannski fyrst og fremst gamla brýnið Eiríkur Önundarsson sem kom þeim aftur á beinu brautina með tveimur 3 stiga körfum snemma í leikhlutanum. Staðan í hálfleik var 44-40 Stjörnunni í vil.

Í upphafi síðari hálfleiks virtust Stjörnumenn ætla að taka leikinn í sínar hendur á nýjan leik, þar sem að Justin var að finna sig afar vel og setti hverja körfuna á fætur annarri en ÍR-ingar voru þó alls ekki að baki dottnir og hélt Nemanja Sovic þeim vel við efnið og því munurinn aðeins 5 stig í lok leikhlutans 62-57.

Mikil spenna einkenndi fjórða leikhlutann, Stjörnunni hafði ekki tekist að hrista af sér baráttuglaða ÍR-inga og það átti eftir að hafa sínar afleiðingar þar sem að Breiðhylltingar náðu að hleypa mikilli spennu í leikinn með tveimur þriggja stiga körfum frá Michael Jefferson og komust yfir í fyrsta sinn  66-68. Í stöðunni 72-70 einni mínútu fyrir leikslok skoraði Djorde mikilvægustu körfu leiksins um leið og skotklukkan rann út með flottu sniðskoti og kom muninum upp í 4 stig. Það var síðan Justin sem kláraði leikinn fyrir okkur Stjörnumenn á vítalínunni en hann var 9 af 9 af línunni í leiknum. Mikilvægur 80-71 sigur í höfn sem hjálpar Stjörnunni í baráttunni um sæti í efri hluta deildarinnar.

Lesa meira...
 
Stjörnustúlkur í byrjendafl keppa á sínu fyrsta móti
Fimmtudagur, 11 Febrúar 2010 12:19

rsz_postmot-stelpur_1Þann 24.janúar kepptu stelpurnar í byrjendaflokki í körfubolta á fyrsta mótinu sínu í körfubolta. Þær tóku þátt í Póstmóti Breiðabliks í Smáranum þar sem þær kepptu þrjá leiki og stóðu sig með mikilli prýði. Liðin sem þær kepptu við voru Haukar, Hamar og Fjölnir. Stjörnustelpurnar í byrjendaflokki eru á aldrinum 5-9 ára og er þetta mjög hress, skemmtilegur og fjölbreyttur hópur. Þær sem kepptu á mótinu voru Bergdís Lilja, Guðrún Ágústa, Lilja, Natalía, Kristina, Sonja, Helena og Hólmfríður(Ía). Stelpurnar voru ákaflega duglegar og gáfust aldrei upp og höfðu gaman af.  ÁFRAM STJARNAN!

 

Kveðja

Steinunn Dúa, þjálfari Byrjendaflokks stúlkna

Mynd:  Steinunn Dúa þjálfari ásamt stelpunum sínum.  Hægt er að sjá fleiri myndir með því að smella á "lesa meira"

Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Forsíða