|
Stjarnan með 6 drengi í U15 |
|
Miðvikudagur, 10 Mars 2010 11:05 |
|
Nú hefur Ingi Þór þjálfari U15 valið 24 manna hóp til undirbúnings fyrir Copenhagen Invitational mótið sem haldið verður í byrjun júní. Stjarnan á flesta fulltrúa í hópnum eða 6 en þetta eru drengir fæddir 1995. Þeir eru:
Christopher Cannon, Dagur Kár Jónsson, Hafsteinn Sigurðsson, Magnús Bjarki Guðmundsson, Tómas Þórður Hilmarsson og Darri Logi Skúlason, sem að vísu leikur með Solna Vikings í Svíþjóð í augnablikinu, en við teljum hann að sjálfsögðu með sem Stjörnumann.
Hópurinn mun væntanlega æfa saman í vor og verður síðan valinn 12-15 manna hópur sem keppir fyrir íslands hönd í Copenhagen Invitional eins og fyrr segir. U15 liðið í fyrra (´94) gerði sér lítið fyrir og sigraði þetta mót. Stjörnusíðan óskar drengjunum til hamingju með valið.
Hægt er að sjá hópinn í heild sinni með því að klikka á "lesa meira"
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Mánudagur, 08 Mars 2010 11:21 |
|
Reykjanesbrautin hefur farið frekar illa í okkar menn í vetur því að á föstudagskvöldið tapaði Stjarnan 3ja leik sínum á Suðrunesjum á tímabilinu, Að þessu sinni urðum við að sætta okkur við tap gegn Njarvíkingum 72-67 eftir spennuþrungnar lokamínútur. Leikurinn einkenndist af mikilli hörku frá upphafi og þarf greinilega að endurskoða það að tala um körfubolta sem leik án snertingar sem maður vissi svo sem að væri ekki rétt, en maður hélt að körfubolti ætti að vera leikur án barsmíða. Undirritum er til efs að Róbert Gunnarsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta sé meira lemstraður eftir leiki heldur en Justin Shouse var eftir þennann leik. Njarðvíkingar lögðu greinilega upp með það að koma Justin út úr leiknum með öllum tiltækum ráðum og höfðu dómarar leiksins ekkert við það að athuga og fór leikurinn á köflum út í tóma vitleysu og getur Justin svo sem þakkað fyrir það að hafa fengið að ljúka leiknum eftir slagsmál við Guðmund Jónsson.
Mynd: Justin í leik gegn Njarðvík á síðasta tímabili
|
|
Lesa meira...
|
|
Viðtalið: Kjartan Atli Kjartansson # 4 |
|
Sunnudagur, 28 Febrúar 2010 21:26 |
|
Hvað varstu gamall þegar að þú byrjaðir að æfa körfubolta og hvað varstu gamall í þínum fyrsta meistaraflokksleik?
Ég byrjaði að stunda körfubolta einu sinni í viku úti á Álftanesi, eða Sultartanga eins og gárangarnir kalla þetta fallega nes í dag. Svo fór ég í Hauka þegar ég var 11 ára og byrjaði að æfa almennilega þá. Fór svo í Stjörnuna 13 ára og spilaði fyrsta meistaraflokksleikinn minn 14 ára í einhverju móti á Keflavíkurflugvelli. Fyrsti alvöru leikurinn kom svo þegar ég var 17 ára, á móti ÍR. Lenti strax í orðaskaki við Halldór Kristmannsson og hann hamraði þristi í andlitið á mér.
Hvað finnst þér best að borða fyrir leiki og hvað er uppháhalds maturinn þinn?
Ég er ekki með neina sérstaka máltíð fyrir leik, fæ mér yfirleitt grænmetisbuff í hádeginu og kannski pasta. Annars finnst mér gott að mixa því upp fyrir leiki. Stundum fæ ég mér fisk, stundum kjúkling eða bara góða samloku. Uppáhaldsmaturinn minn er plokkfiskur og svo mexíkó-lasagne a la Pálína.
Sætasti sigurinn á körfuboltavellinum?
Í þriðja sæti er þegar við unnum fyrsta Íslandsmeistaratitil Stjörnunnar, þegar við vorum í 11. flokki. Mættum þá Grindavík og Lalli átti stórleik fyrir þá. Okkur tókst samt að leggja sterkt Grindavíkurlið sem hafði unnið okkur í úrslitum árið áður. Í öðru sæti er svo þegar við lögðum Val í Kennaraháskólanum og komust upp.Í fyrsta sæti er svo leikurinn gegn KR í fyrra í úrslitum bikarsins. Þarf ekkert að segja meira um það.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stjarnan tapaði gegn Grindvík í Ásgarði 76-81. |
|
Fimmtudagur, 25 Febrúar 2010 23:08 |
|
Stjarnan og Grindavík mættust í kvöld í Ásgarði í miklum spennuleik 76-81. Leikurinn var jafn og spennandi nær allan leikinn en bæði lið hafa þó oft spilað mun betur en þau gerðu í kvöld. Menn virtust aldrei almennilega finna taktinn af einhverjum ástæðum og því fór sem fór. Stjarnan átti þó góðan möguleika á að jafna leikinn í lok venjulegs leiktíma og senda leikinn í framlengingu en skot Jovans geigaði að þessu sinni og Grindavík kláraði leikinn svo á vítalínunni.
Atkvæðamestir Stjörnunnar í leiknum voru Jovan 22 stig, Justin 21 stig og Djordje 15 stig og 13 fráköst.
Afar góð umfjöllun um leikinn má lesa á www.karfan.is
Áfram Stjarnan!
|
|
Miðvikudagur, 24 Febrúar 2010 10:46 |
|
Eftir leiðinlega langt hlé vegna bikarúrslitanna þá fer Iceland Express deildin aftur af stað á fimmtudaginn. Stórleikur umferðarinnar er klárlega leikur Stjörnunnar og Grindavíkur. Eins og eflaust allir vita töpuðu Grindvíkingar úrslitaleiknum í bikarnum og mæta vafalaust dýrvitlausir í þennan leik. Liðin sitja í dag i 3. og 4. sæti deildarinnar. Þetta eru þau tvö lið sem eru heitust í deildinni í dag, Grindavík hefur unnið síðustu 4 deildarleiki og Stjarnan síðustu 3.
Nú reynir á að Garðbæingar fjölmenni í Ásgarð og styðji við bakið á strákunum. Næstu 3 leikir geta skorið úr um það hvort Stjarnan nái einu af 4 efstu sætunum í deildinni sem gæti orðið dýrmætt þegar upp er staðið. Á eftir Grindavíkurleiknum er útileikur gegn Njarðvík og síðan koma íslandsmeistararnir í KR í heimsókn í Garðabæinn. Þessir leikir gætu allir unnist en þeir gætu hæglega líka allir tapast. Tveir eða ég tali nú ekki um 3 sigrar kæmi liðinu í kjörstöðu í baráttunni um toppsætið en 2 eða 3 töp kæmu liðinu aftur á móti í mjög erfiða stöðu. Síðustu leikirnir eru síðan gegn Hamri á útivelli og lokaleikurinn er gegn nágrönnum okkur úr Kópavogi og þessir leikir eru sýnd veiði en ekki gefin. Það vill svo skemmtilega til að öll 6 efstu liðin sem enn eiga möguleika á deildarmeistaratitlinum, eiga eftir 3 innbyrðisleiki hvert við annað og ekki ólíklegt að öll liðin eigi eftir að tapa stigum.
Mynd: Óli Sig
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |