|
Stjarnan - Breiðablik í kvöld í Ásgarði klukkan 19:15! |
|
Miðvikudagur, 17 Mars 2010 10:40 |
|
Stjarnan tekur á móti nágrönnum sínum úr Kópavoginum þegar að Breiðarblik kemur í heimsókn í Ásgarðinn í kvöld og hefjast leikar klukkan 19:15. Við hvetjum Stjörnumenn til að mæta á völlinn og styðja strákana áfram til sigurs!
Áfram Stjarnan!!!
|
|
|
Silfurdrengir í 8. flokki |
|
Mánudagur, 15 Mars 2010 14:52 |
|
Um helgina fór fram í Ásgarði úrslitaturnering í 8. flokki. Heimamenn í Stjörnunni áttu titil að verja sem ríkjandi íslandsmeistarar. Eftir hörkukeppni stór KR uppi sem sigurvegarar og sigruðu þeir alla sína leiki og óskum við þeim til hamingju með það. Stjarnan lenti í öðru sæti, sigraði 4 af 5 leikjum sínum. Stjörnusíðan óskar drengjunum og þjálfurum þeirra, Justin Shouse og Óla Sig, innilega til hamingju með árangurinn.
Mynd: Silfurdrengirnir ásamt þjálfurum. Frá vinstri: Ólafur Sigurðson, Justin Shouse, Guðmundur Einar Hannesson, Einar Valberg Eiríksson, Arnar Steinn Hansson, Óskar Þorsteinsson, Guðmundur Smári Þorvaldsson, Halldór Einarsson, Brynjar Magnús Friðriksson, Finn Axel Hansen, Hákon Örn Harðarson, Daði Lár Jónsson, Zymon Nabakowsky, Helgi Rúnar Björnsson og Leifur Sævarsson.
Nánari umfjöllun um mótið mun væntanlega birtast hér að síðunni innan tíðar.
|
|
Stjarnan aftur á sigurbraut eftir sigur á Hamri! |
|
Sunnudagur, 14 Mars 2010 22:50 |
|
Stjörnumenn komu sér aftur á sigurbrautina í kvöld með góðum sigri á Hamri, 73-96 í Hveragerði.
Stjarnan byrjaði leikinn af miklum krafti og skoruðu 10 fyrstu sig leiksins og gáfu þar með tóninn. Jovan,Justin og Maggi voru heitir fyrir utan þriggja stiga línuna og vörnin small vel saman enda skoruðu heimamenn aðeins 11 stig í fyrsta leikhluta. Meira jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta en Stjarnan vann hann þó 17-19 og leiddi í hálfleik 28-41.
Kjartan opnaði síðari hálfleikinn með þriggja stiga körfu úr horninu og stuðningsmenn Stjörnunnar bjartsýnir á framhaldið. Guðjón Lárusson sem hafði lítilega komið við sögu í fyrri hálfleik sýndi og sannaði í síðari hálfleik að hann kann þetta allt saman. Ásamt því að skora nokkrar körfur, þá var hann að hirða fráköst og berjast vel og var gaman að sjá hann í kvöld. Forskot Stjörnunnar hélst nokkuð stöðugt í 14-16 stigum út leikhlutan og endaði hann 47-63.
Stjörnumenn gáfu ekkert eftir í fjórða leikhlutanum heldur bætu örlítið í og unnu eins og áður segir mjög sannfærandi sigur í kvöld.
Mynd: Guðjón Lárusson
|
|
Lesa meira...
|
|
Laugardagur, 13 Mars 2010 10:10 |
|
Stjarnan tapaði sínum þriðja leik í röð í kvöld þegar KR ingar mættu í heimsókn. Fullt hús og brjáluð stemning í Ásgarði gaf okkar mönnum byr undir báða vængi, og liðið rúllaði léttilega yfir KR inga í 35 mínútur í kvöld. Þristarnir voru að detta, vörnin small og liðið að spila mjög vel í heildina. KR ingar hins vegar voru sí tuðandi hver í öðrum og greinilega fór mótlætið ekki vel í marga þeirra, sérstaklega Tommy Johnson sem er furðulegt að fái hreinlega að klára leiki án þess að fá 5 villur eða 2 tæknivíti, því kappinn virðist ávallt þefa uppi slagsmál, tuð og leiðindi.
Þegar sigurinn virtist höfn í fjórða leikhluta, Stjarnan með 13 stiga forskot og tæpar þrjár mínútur eftir gerðist eitthvað sem ekki er hægt að útskýra. Menn hættu sækja á körfuna og köstuðu boltanum hvað eftir annað í hendur KR inga sem þökkuðu pent fyrir sig og stálu sigrinum á síðustu sekúndunum. Það er ótrúlegt að ná ekki að halda út í svo stuttan tíma og klára unnin leik. Með alla þessa reynslubolta í liðinu á það einfaldlega ekki að vera hægt, sérstaklega ekki gegn KR ingum sem voru einfaldlega yfirspilaðir nánast allan leikinn í kvöld og áttu ekkert nema tap skilið úr þessum leik.
Nú verða menn bara að gyrða sig í brók, ekki seinna en núna og klára þá síðustu 2 leiki sem eftir eru. Hamar og Blikar eru hvorki sýnd né gefin veiði. Hörkulið bæði og menn verða að spila á 150% krafti í 40 mínútur gegn þeim ef þeir ætla að eiga einhvern möguleika á sigri.
Að lokum má furða sig á því að engin tæknivilla hafi litið dagsins ljós í Ásgarði í gær. Vörnin var mjög hörð og mikið um pústra og slagsmál þar sem skilja þurfti á milli manna, yfirleitt sömu mannana. Það er umhugsunarvert að allan fjórða leikhluta spiluðu KR ingar mjög agressífa pressu fullan völl þar sem nuddast og ýtt var á þá sem báru upp boltann án þess að nokkuð væri dæmt. KR fékk heilar 3 villur í fjórða leikhluta, sem er afrek út af fyrir sig. |
|
Stjarnan - KR í Ásgarði á morgun klukkan 19:15! |
|
Fimmtudagur, 11 Mars 2010 11:18 |
|
 |
|
Stórleikur Stjörnunnar og KR er í kvöld í Ásgarði klukkan 19:15.
Stjörnumenn eru í gríðarlegri baráttu um að ná heimaleikjarétti í úrslitakeppninni sem byrjar í lok mars. Nú mætir topplið KR í Ásgarðinn og því verða allir Garðbæingar sem vettlingi geta valdið að mæta á leikinn og styðja okkar menn.
Mætum öll og búum til svaðalega stemningu í Ásgarði!
Áfram Stjarnan!!!
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |