|
Rútuferð klukkan 18:00 frá Ásgarði; Frítt fyrir Stjörnumenn! |
|
Sunnudagur, 28 Mars 2010 20:52 |
|
Það verður rútuferð frá Ásgarði á leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í úrslitakeppninni í körfubolta í kvöld. Lagt af stað klukkan 18:00 frá Ásgarði, frítt fyrir alla Stjörnumenn. Þetta er leikur 2 í einvíginu en Stjarnan tapaði fyrsta leiknum í Ásgarði 64-75. Það er alveg á tæru að það býr mun meira í Stjörnuliðinu en þeir sýndu í fyrsta leiknum og menn hljóta að vera ákveðnir í að gera betur í kvöld.
Fyrra liðið til að vinna tvo leiki fer áfram í næstu umferð og er því allt undir hjá Stjörnumönnum í leiknum, þar sem að tap þýðir að strákarnir eru komnir í sumarfrí en sigur þýðir oddaleikur í Ásgarði næstkomandi fimmtudagskvöld. Fjölmennum á leikinn í kvöld og styðjum strákana áfram til sigurs!
Skylda að mæta í bláu til að fá frítt í rútuna.
Áfram Stjarnan!!! |
|
|
Veislan að byrja-allir í BBQ fyrir leik |
|
Miðvikudagur, 24 Mars 2010 20:13 |
|
Á föstudagskvöldið kl 19:15 hefst úrslitarimma Stjörnunnar og Njarðvíkur í 8 liða úrslitum IE deildarinnar. Nú þurfa allir Garðbæingar að mæta og styðja strákana. Sama hvort menn hafi áhuga á fótbota, handbolta, blaki eða körfu, nú ríður á að sameinast og hvetja STJÖRNUNA til sigurs. Heyrst hefur að boðið verði uppá grillaða Stjörnuborgara frá kl 6 og um að gera að mæta með fjölskylduna, borða saman í rólegheitunum fyrir leik og öskra sig síðan hásan á leiknum.
Mynd: Kjartan Atli bíður eftir úrslitum frá Akureyri eftir síðasta deildarleik 2008. Ef Þór A hefði tapað sínum leik þá kæmist Stjarnan í úrslitakeppnina. En Þór vann og menn fóru snemma í sumarfrí.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stjarnan - Njarðvík, Úrslitakeppnin! Ásgarður næsta föstudag klukkan 19:15! |
|
Miðvikudagur, 24 Mars 2010 12:49 |
|
Stjarnan og Njarðvík mætast í Ásgarði næstkomandi föstudagskvöld í úrslitakeppninni í körfubolta. Þetta er leikur 1 í einvíginu en fyrra liðið til að vinna 2 leiki kemst áfram í næstu umferð. Næsti leikur er síðan í Njarðvík næstkomandi mánudagskvöld.
Bæði lið eru mjög vel mönnuð og spá menn hörku einvígi.
Við verðum með Stjörnugrill fyrir leik og mælum við með því að fólk skelli sér í grillið og komi sér í rétta gírinn. Stjörnugrillið hefst klukkan 18:00 og er staðsett í anddyrinu á Ásgarði.
Við hvetjum allt Stjörnufólk að mæta á leikinn og styðja strákana áfram til sigurs!
Áfram Stjarnan!!! |
|
Leikdagar í 8 liða úrslitum liggja fyrir |
|
Föstudagur, 19 Mars 2010 21:04 |
|
Eins og fram kom hér í síðustu frétt þá eru mótherjar Stjörnunnar í 8 liða úrslitunum stórlið Njarðvíkur. Nú hefur KKÍ gefið út leikdagana og verður fyrsti (eða fyrri) leikur liðanna föstudagskvöldið 26. mars kl 19:15 í Ásgarði. Það lið sem fyrr vinnur 2 leiki tryggir sér sæti í undanúrslitum. Leikur nr 2 sem fram fer í Njarðvík verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.
Dagsetningarnar eru eftirfarandi:
Leikur 1 Stjarnan - Njarðvík, Ásgarður, föstudaginn 26.mars kl 19:15
Leikur 2 Njarðvík - Stjarnan, Ljónagryfjan, mánudaginn 29.mars kl 19:15
Oddaleikurinn, ef á þarf að halda, yrði fimmtudaginn 1. april í Ásgarði kl 19:15
Garðbæingar, takið þessa daga frá, nú fer fjörið að byrja!
Mynd: Fyrirliðinn og leikstjórnandinn á góðri stund
Áfram Stjarnan |
|
4.sætið tryggt, mætum Njarðvík í 8 liða úrslitum! |
|
Fimmtudagur, 18 Mars 2010 21:35 |
|
Stjarnan tryggði sér 4.sætið í Iceland Express deildinni nú í kv öld með öruggum sigri gegn nágrönnum okkar í Breiðablik 109-86. Stjarnan mætir Njarðvík í 8.liða úrslitum og fer leikur 1 fram í Ásgarði föstudaginn 26 mars.
Það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi falla og áttu strákarnir fínan leik í kvöld. Allir lögðu vel í púkkið þar sem 5 leikmenn skoruðu 10 stig eða meira og tveir leikmenn settu 9 stig, þannig að stigaskorið dreifðist vel á milli manna. Mjög gaman var að sjá Ella og Haffa fá mínútur í kvöld og gerði Elli sér lítið fyrir og smellti einum góðum þrist frá miðbænum. Jovan var drjúgur með 19 stig, Justin 17 stig, 7 stoðsendingar og Djordje 15 stig, 10 fráköst. Óli kom sterkur inn af bekknum með 9 stig og 6 stoðsendingar. Birkir smellti niður þremur þribbum, Maggi skellti 13 stigum á töfluna og fyrirliðinn Fannar Helga lét ekki sitt eftir liggja og bætti 14 stigum í sarpið.
Mynd: Teitur mætir gömlu félögum í Njarðvík í 8.liða úrslitum.
Flottur sigur hjá strákunum í kvöld, menn voru að spila virkilega vel saman sem lið og tóku vel á því. Nú bíður okkar erfitt verkefni að mæta Njarðvík í 8 liða úrslitum og er algjör nauðsyn að fá allt Stjörnufólk í næsta leik í Ásgarð og styðja þannig vel við bakið á strákunum.
Nánar um úrslitakeppnina síðar;
Áfram Stjarnan!!!
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |