|
Stjarnan gerði góða ferð suður í kvöld er þeir lögðu lið Njarðvíkur á einum af sterkustustu heimavöllum deildarinnar - Ljónagryfjunni í Njarðvík, 91-95. Stjörnumenn voru með bakið upp við vegg þar sem að tap hefði þýtt sumarfrí fyrir þá bláklæddu. En með þessum góða sigri þá er ljóst að liðin munu mætast í hreinum úrslitaleik um hvort fari áfam í næstu umferð og fer leikurinn fram á heimavelli Stjörnunnar í Ásgarði næstkomandi fimmtudagskvöld.
Leikurinn í kvöld var mikil skemmtun og ljóst að mikið var undir hjá báðum liðum og þá sérstaklega Stjörnunni því þeir máttu ekki við tapi eins og áður segir. Stjarnan byrjaði líka leikinn gríðarlega vel í kvöld og voru ákveðnir að selja sig dýrt.
Mynd (karfan.is): Stjörnumenn fjölmenntu í Njarðvík í kvöld.
Nick Bradford skoraði fyrstu tvö stigin í leiknum en eftir það var fyrsti leikhlutinn Stjörnumanna. Jovan var fljótur að svara með þrist og í kjölfari fylgdu körfur hjá Justin, Pantelic og Fannari , og allt í einu staðan um miðjan leikhluta orðin 14-4 Stjörnunni í vil. Liðin skiptust á körfum út leikhlutann og var staðan að honum loknum 15-24.
Guðjón og Óli bætust í hóp skorara í öðrum leikhluta og Kjarri hrökk í gang svo um munaði og smellti m.a niður tveimur mikilvægum þristum. Maggi kom með einn góðan þrist í tilefni dagsins og Justin hélt áfram að þjarma að körfu Njarðvíkinga með góðum árangri en hann skoraði síðustu stig Stjörnumanna í leikhlutanum með góðum þrist.
Staðan í hálfleik 37-52, en menn vissu að það er forysta sem getur verið mjög fljót að fara, sérstaklega á sterkum útivelli.
Enda var það raunin, Njarðvíkingar komu mun einbeittari til leiks í byrjun þriðja leikhluta, ákveðnir að vinna munin upp. Okkar menn reyndu hvað þeir gátu að halda heimamönnum í skefjum en Maggi Gunn og félagar fóru að hitta úr öllu og náðu loks að jafna leikinn 65-65 við lítin fögnuð okkar Stjörnumanna, en þristur af dýrari gerðinni frá Pantelic lokaði leikhlutanum og leiddu því Stjörnumenn að honum loknum 65-68.
Maggi Gunn var greinilega kominn í gang í byrjun 4.leikhluta og var ekki lengi að jafna leikinn 68-68 í fyrstu sókn heimamanna en Serbinn stóri var ekkert að hika við hlutina heldur smellti sínum þriðja þrist í leiknum og kom Stjörnumönnum aftur á bragðið svo um munaði. Körfur frá Fannari og Justin litu síðan dagsins ljós og risa þristur frá Jovani 5 mínútum fyrir leikslok, staðan 74-80.
Eftir körfu frá Guðjóni og risa þrist hjá Justin 54 sek fyrir leikslok og staðan 80-90 Stjörnunni í vil, héldu eflaust flestir að nú væri sigurinn í höfn. En þannig virkar ekki körfubolti , þetta er ekki búið fyrr en lokaflautan gellur. Eftir 3 víti frá Magnúsi Gunnarssyni 12 sekúndum fyrir leikslok, þá var munurinn aðeins 4 stig, 91-95. Jovan var sendur á línuna en náði ekki að setja vítin ofaní og síðustu tilraunir heimamanna geiguðu sem betur fer fyrir okkur Stjörnumenn.
Það verður að segjast eins og er að strákanir gerðu góða ferð suður í kvöld og náðu í afar harðsóttan sigur. Nú er einvígið galopið á nýjan leik og hreinn úrslitaleikur næstkomandi fimmtudagskvöld í Ásgarði. Njarðvíkingar léku okkur grátt síðast í Ásgarði og vissara fyrir menn að gleyma því ekki og vera virkilega tilbúnir í mikil átök!
Mættum öll og styðjum strákana áfram til sigurs á fimmtudaginn,
KOMA SVO STJÖRNUMENN!
Áfram Stjarnan!!!
|