|
Körfuboltaskóli á laugardaginn! |
|
Fimmtudagur, 02 September 2010 09:26 |
|
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar býður uppá körfuboltaskóla fyrir byrjendur og lengra komna laugardaginn 4. september. Kennd verða grunnatriði í körfubolta og farið í skemmtilega leiki. Í lokin verður boðið uppá pizzuveislu. EKKERT ÞÁTTTÖKUGJALD!
8 ára og yngri (f. 2002 og síðar) verða milli 12:30-14:00
9-11 ára verða milli 14:30-16:30
Skráning fer fram með því að senda nafn og kennitölu á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Kennarar eru þjálfarar Stjörnunnar og leikmenn meistaraflokka karla og kvenna.
|
|
|
Miðvikudagur, 25 Ágúst 2010 15:46 |
|
Nú styttist í að hasarinn byrji í körfunni og félögin á fullu í sínum undirbúningi. Nú á fimmtudag og föstudag fer fram æfingamót í Ásgarði. Þar koma í heimsókn úrvalsdeildarlið Keflavíkur og ÍR auk 1. deildarliðs Breiðabliks. Dagskráin er eftirfarandi:
Fimmtudag:
Kl 18:00 Stjarnan - ÍR
Kl 20:00 Breiðablik - Keflavík
Á föstudeginum kl 18:00 leika síðan tapliðin frá deginum áður og kl 20:00 leika liðin sem sigruðu sína leiki á fimmtudeginum. Allir eru hvattir til að kíkja við í Ásgarði og sjá hvernig liðin koma undan sumri. Aðgangur er ókeypis.
|
|
Justin Shouse kemur aftur í Garðabæinn |
|
Miðvikudagur, 07 Júlí 2010 22:44 |
|
Stjarnan hefur náð samningum við Justin Shouse um að leika með liðinu næsta vetur í Iceland Express deildinni. Justin leikur því sitt þriðja tímabili í röð fyrir Stjörnuna, en hann var kosinn besti erlendi leikmaðurinn í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, skoraði 23.8 stig og var með 6 stoðsendingar að meðaltali leik. Hann var einnig valinn íþróttamaður Stjörnunnar fyrir árið 2009. Í samtali við Justin sagðist hann vera mjög spenntur fyrir að koma aftur til Stjörnunnar enda kann hann vel við sig í Garðabænum. Hann sagðist líta björtum augum á næsta tímabil og líst vel á hópinn í fyir veturinn. Justin mun einnig þjálfa 8. og 9. flokk drengja og verða örugglega margir þeirra ánægðir með að kappinn snúi aftur enda er hann mjög vinsæll meðal yngri iðkenda.

Það má því segja að nokkuð endanleg mynd sé komin á hópinn sem spilar með Stjörnunni í vetur. Hópurinn verður að öllum líkindum nánast óbreyttur frá því í fyrravetur, fyrir utan að Ólafur Sigurðsson fer til Danmerkur í nám. Við hópinn hafa svo bæst þeir Marvin Valdimarsson og Daníel Guðmundsson sem styrkja liðið enn frekar fyrir átökin næsta tímabil.
Mynd: Justin gegn Njarðvík á síðasta tímabili. Hann mætir aftur í Garðabæinn og leikur að vanda í treyju nr. 12
|
|
Útileikur gegn KR í fyrstu umferð Iceland Express |
|
Þriðjudagur, 22 Júní 2010 16:45 |
|
Í gær var dregið í töfluröð fyrir Iceland Express deildina 2010-2011. Stjarnan fær verðugt verkefni í upphafi leiktíðar því fyrsti leikur liðsins er útileikur gegn sterku liði KR. Fyrsti heimaleikurinn er síðan gegn Fjölni í annarri umferð og síðan bíður Keflavík á útivelli í þriðju umferð. Það er því eins gott að menn mæti tilbúnir til leiks strax í byrjun.
Stjarnan á góðar minningar úr DHL höllinni. Síðasta tímabil hófst þar með titli þegar KR-ingar voru sigraðir í leik um meistara meistaranna og síðan sigruðu okkar menn KR-ingana þar aftur í deildinni. Fyrsti heimaleikurinn í fyrra var einnig gegn Fjölni og vannst hann nokkuð örugglega. Aftur á móti bíða Stjörnumenn ennþá eftir fyrsta sigrinum á Keflvíkingum á útivelli.
Þess má geta að í fyrri umferðinni mæta Stjörnumenn liðum KR, Keflavíkur, Grindavíkur og Snæfells öllum á útivelli. Fyrirfram má gera ráð fyrir að þessi 4 lið ásamt okkar mönnum vonandi, muni berjast um heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni ásamt Njarvík og væntanlega einhverjum sem á eftir að koma á óvart. Síðan gæti eitthvert ofantaldra liða komið á óvart með því að blanda sér ekki í baráttuna.
Leikjaplan Iceland Express deild karla |
|
Landsliðsmenn framtíðarinnar |
|
Mánudagur, 14 Júní 2010 09:36 |
|
Stjarnan átti 2 fulltrúa í U15 landsliðinu, sem náði öðru sæti á sterku alþjóðlegu móti í Danmörku nú um helgina, þá Christopher Cannon og Dag Kár Jónsson. Fjallað er um mótið inná kki.is og spiluðu strákarnir 5 leiki og komust þeir taplausir í úrslitaleikinn sem tapaðist með 9 stigum gegn Englendingum, frábær árangur það.
Þessir strákar eru fyrstu landsliðsmenn félagsins í yngri landsliðunum síðan Kjartan Atli, Guðjón, Birkir og fleiri núverandi leikmenn meistaraflokks léku fyrir Íslands hönd fyrir hrikalega mörgum árum . Auk þeirra tveggja eru þeir Hafsteinn Sigurðsson, Magnús Guðmundsson, Tómas Þórður Hilmarson og Darri Logi Skúlason í æfingahóp U16 landsliðsins sem hefur undirbúning í sumar fyrir norðurlandamótið sem fram fer í Solna í Svíþóð í maí á næsta ári, en þess má geta að Darri leikur einmitt með Solna um þessar mundir. Þessir drengir munu örugglega reyna að gera landsliðsþjálfaranum erfitt með að ganga fram hjá þeim að ári.
Mynd: Cannon lék sína fyrstu landsleiki um helgina
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |