Stjarnan - Körfubolti


Næstu heimaleikir - Mfl Karla

ICELAND EXPRESS DEILDIN.

Stjarnan - Haukar,   Fim.   2. febrúar kl. 19:15

Stjarnan - Þór Þ,     Sun,  12. febrúar kl. 19:15

Þú ert hér: Forsíða
Stigunum kastað á glæ
Föstudagur, 20 Janúar 2012 09:01
marvin

Þjálfarar og leikmenn Stjörnunnar hafa eflaust átt erfitt með að sofna eftir að hafa kastað frá sér sigrinum gegn Tindastól í gærkvöldi.  Eftir að hafa haft 5-10 stiga forystu meira og minna allann leikinn þá náðu Stjörnumenn á einhvern óskiljanlegan hátt að klúðra síðustu mínútunni og missa leikinn í framlenginu sem svo tapaðist.  Þegar 13 sekúndur voru eftir ná Stólarnir  að jafna með þrist og heimamenn taka leikhlé.  Hvað var rætt í þessu hléi og hvað menn ætluðu að gera á þessum 13 sekúndum er hulin ráðgáta.  Væntanlega mun þessi sókn fara í kennslubækur um hvernig á ekki að ljúka leikjum!  Eftir að Justin var búinn að hanga á boltanum í ca 10 sekúndur þá kom hann honum á Keith sem var í strangri gæslu langt út á velli og átti enga möguleika í stöðunni, hann reyndi að vísu vonlaust skot sem gekk ekki og framlengin staðreynd og gestirnir sigruðu 85-88.

Heilt yfir var þessi leikur mikil framför frá síðustu leikjum.  Stólarnir eru með hörkulið en Stjarnan átti fyrir löngu að vera búina að klára leikinn.   Alltaf þegar heimamenn virtust vera við það að slíta sig frá þeim komu þeir til baka og misstu aldrei trúna og það skilaði þeim að lokum 2 stigum.  Marvin lék einna best af heimamönnum ásamt Keith sem lék betur en oft áður átti klárlega tiltrif leiksins þegar hann tróð með tilþrifum.  Einnig skiluðu Fannar og Renato þokkalegum leik þó að Renato hafi gengið illa að klára skotin sín.  En það er óneitanlega áhygguefni hvernig leikstjórnandinn okkar og heilinn í liðinu, Justin Shouse, er að spila þessa dagana.   Hann er algerlega óþekkjanlegur frá því fyrir jól og hann sem er að öllu jöfnu með allt að 50% nýtingu í 3ja stiga skotum getur ekki keypt sér körfu fyrir utan línuna þessa dagana.   Eins er hann að tapa allt of mörgum boltum eins og reyndar liðið allt.  En við vitum öll hvað Justin getur og vonandi kemst hann sem fyrst í gírinn að nýju.

Dómarar leiksins voru þeir Kristinn Óskarsson og Eggert Aðalsteinsson.  Kiddi virðist bara batna með árunum en Eggert hefur átt betri daga.

Næstu 2 leikir Stjörnunnar eru gegn botnliðunum Val og Haukum.  Vonandi nýtast þeir leikir til að menn komist á beinu brautina aftur.

 
Stólarnir í heimsókn á fimmtudag
Miðvikudagur, 18 Janúar 2012 15:33
stjarnantindas_uppkast

Á morgun, fimmtudaginn 19. janúar hefst seinni umferð IEX deildarinnar.  Stjörnumenn fá verðugt verkefni en þeir fá í heimsókn Tindastólsmenn.  Stólarnir hafa verið á góðri siglingu undanfarið og unnið 4 af síðustu 5 leikjum sínum í deildinni.  Stólarnir eru bæði búnir að skipta um þjálfara og eins eitthvað af útlendingum í haust og það virðist vera að skila sér á stigatöflunni og í mun betri leik.  Það er því ljóst að okkar drengir verða að leika betur en þeir hafa gert eftir áramótin ef þeir ætla sér að eiga möguleika.


Það hefur ekki verið grillað undanfarnan leiki og það er líklegasta ástæðan fyrir slakari leik okkar mannaSmile.  En nú verður allt með hefðbundum hætti, byrjað að grilla kl 18:15 og leikurinn hefst síðan á hefðbundnum tíma kl 19:15.  Nú þurfum við stemmingu á pallana, það hefur vantað uppá það líka undanfarið.Enn eru engar fréttir af Jovan og enn óljóst hvenær við fáum að sjá hann á parketinu.  Renato lék sinn fyrsta leik gegn Grindavík um daginn en náði sér ekki á strik frekar en aðrir enda nýlentur á klakanum.  Nú hafa menn fengið góðan tíma til að hrista saman hlutina og vonandi einnig náð að hrista úr sér þennann jólahroll sem hrjáð hefur menn síðustu 3 leiki.  Við auglýsum eftir svipuðum leik og strákarnir sýndu okkur fyrir jól og þá sérstaklega gegn Keflavík, eitt stykki svoleiðis leikur yrði vel þeginn!!

Koma svo Garðbæingar, nú mætum við öll í burger og gerum síðan allt vitlaust á pöllunum!!

 

 
Marvin í úrvalsliði fyrri umferðar
Miðvikudagur, 18 Janúar 2012 15:04

urvalslidfyrriumferdar20112012jboÍ dag var kunngert úrvalslið fyrri umferðar Iceland Express deildarinnar.  Það kom fáum á óvart að Marvin Valdimarsson var valinn í liðið enda átt frábært tímabil.  Marvin var geysilega duglegur að æfa í sumar og er nú að uppskera árangur erfiðiðsins.   Marvin er sá íslendingur sem hefur hlotið flest framlagstig í deildinni í vetur, 21,4 að meðaltali og skorað 17,2 stig í leik og er í 3ja sæti íslendinga í stigaskorun á eftir Justin Shouse og Magnúsi Gunnarsyni.

Mynd:  Árni og Marvin við verðlaunaafhendinguna. Myndin er fengin að láni af Karfan.is

Einnig er vert að geta þess að Árni Ragnarson leikmaður Fjölnis er einnig í liðinu.  Það vill svo skemmtilega til að þeir Árni og Marvin þjálfa saman 3 yngstu drengjaárgangana hjá Stjörnunni.  Það er greinilegt að ungviðið í Stjörnunni er í góðum höndum.

Stjörnusíðan óskar þeim félögum til hamingu með árangurinn.

 
Renato Lindmets er kominn aftur!
Miðvikudagur, 11 Janúar 2012 22:15

Í gærkvöldi mætti Renato Lindmets til landsins en hann mun spila með Stjörnunni það sem eftir er af tímanbilinu. Renato spilaði fyrri hluta tímabilsins í Portúgal en sagði upp samningnum þar um helgina og hafði samband við forráðamenn Stjörnunnar.  Þrenato_vs_grindað þurfti ekki að hugsa sig um tvisvar þegar svo öflugur leikmaður býður krafta sína og kappinn var mættur í gærkvöldi og kom á æfingu í kvöld. 

Þetta er gríðarlega góð viðbót við liðið þar sem okkar menn hafa verið frekar þunnskipaðir í nokkurn tíma á meðan Jovan hefur verið meiddur, og er enn.  Ef Jovan nær sér á strik með tíð og tíma þá eru Stjörnumenn til alls líklegir í baráttunni um titilinn í vetur.

Vonast er til að Renato verði kominn með leikheimild á morgun gegn Grindavík.

Áfram Stjarnan!!

 
Toppbarátta í Ásgarði á fimmtudag
Miðvikudagur, 11 Janúar 2012 10:40

justin_og_fannsiÁ fimmtudaginn fer fram lokaleikur fyrri umferðar Iceland Express deildarinnar og þá mætast 2 efstu liðin í Ásgarði þegar toppliðið, Grindavík, mætir Stjörnunni sem situr í öðru sæti.  Fyrir jól var Stjarnan að spila glimrandi vel og í síðasta heimaleik í deildinni vannst öruggur sigur á Keflavík.  Aftur á móti hefur jólasteikin eitthvað farið illa í okkar menn því 2 fyrstu leikirnir eftir hátíðirnar hafa verið þeir slökustu í manna minnum!  En nú ættu menn að vera búnir að hrista það af sér og það munu allir mæta tilbúnir gegn Grindvíkingum.  Eins og okkar menn þá duttu Grindvíkingar út úr 16 liða úrslitum bikarkeppninnar á dögunum og munu allt í sölurnar til að verja toppsætið, því með sigri nær Stjarnan efsta sæti deildarinnar.  Allir nema Jovan eru klárir og hafa Teitur og strákarnir lofað 100% bætingu frá síðasta leik. Og það dugar klárlega ekkert minna gegn fyrnasterku liði Grindavíkur.  Þeir fóru mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar og fengu 2 landsliðamenn til liðs við sig, þá Sigurð Þorsteinsson frá Keflavík og Jóhann Árna úr Njarðvík.   Auk þess sem þeir eru með 2 mjög góða kana í sínum röðum.  Sérstaklega hefur J´Nathan Bullock vakið athygli en hann er mikið tröll að burðum og lék á tímabili í ameríska fótboltanum.  Það verður alveg þess virði að koma og fylgjast með viðureign hans við okkar varnarmenn.

Mynd:  Justin go Fannar eins og við viljum sjá þá á fimmtudaginn!

Nú þarf liðið á góðum stuðningi að halda, leikurinn hefst að vanda kl 19:15.  Garðbæingar FJÖLMENNUM!

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Staðan

Find us on Facebook

Forsíða